Skilmálar og persónuvernd

Síðast uppfært: ágúst 2026

Skilmálar

1. Um fyrirtækið

Þjónustan á þessari vefsíðu er veitt af Netkynningu og kennslu ehf, kt. 660723-1020 („Netkynning", „við"). Netfang: [email protected], sími: 686 8686. Með því að nýta þjónustu Netkynningar samþykkir þú eftirfarandi skilmála.

2. Tilboð og pantanir

Tilboð frá Netkynningu eru veitt á grundvelli þeirra upplýsinga sem viðskiptavinur gefur upp um verkefnið. Tilboð gilda í 14 daga frá útgáfudegi nema annað sé tekið fram. Verkefni telst staðfest þegar viðskiptavinur samþykkir tilboð skriflega, t.d. með tölvupósti.

3. Verð og greiðsla

Verð er ákveðið út frá tilboði sem veitt er fyrir hvert verkefni, nema um annað sé samið sérstaklega, og eru án virðisaukaskatts nema annað sé tekið fram. Fyrir stærri verkefni er 50% staðfestingargreiðsla innheimt við bókun og eftirstöðvar við afhendingu. Fyrir minni verkefni er greitt við afhendingu. Gjalddagi reikninga er 14 dagar frá útgáfudegi.

4. Afbókun og breytingar

Óskir um afbókun eða breytingu á bókuðu verkefni skal senda skriflega með hæfilegum fyrirvara, að lágmarki 5 virkum dögum fyrir umsaminn upptöku- eða afhendingardag. Sé afbókað með skemmri fyrirvara getur allt að 50% af umsömdu verði fallið til sem afbókunargjald, til að mæta þeim tíma sem þegar hefur verið frátekinn.

5. Afhending efnis

Endanlegt efni (myndbönd, ljósmyndir, upptökur eða annað) er afhent í því sniði og á þeim miðli sem samið er um í upphafi verkefnis. Ein umferð af athugasemdum og minniháttar breytingum er innifalin í verði; frekari breytingar umfram það eru verðlagðar sérstaklega.

6. Höfundarréttur og notkunarréttur

Þegar verkefni hefur verið greitt að fullu fær viðskiptavinur notkunarrétt á umsömdu efni í þeim tilgangi sem samið var um. Netkynning áskilur sér rétt til að nota afurðir verkefna í eigin kynningarefni (t.d. á Verkefni-síðunni eða samfélagsmiðlum) nema viðskiptavinur óski sérstaklega eftir öðru.

7. Ábyrgð

Netkynning leggur metnað í að skila vönduðu og áreiðanlegu efni. Netkynning ber þó ekki ábyrgð á tjóni sem hlýst af óviðráðanlegum atvikum (t.d. bilun í búnaði þriðja aðila, veðri eða öðrum ytri aðstæðum) sem hafa áhrif á tímasetningu eða framkvæmd verkefnis.

8. Gildissvið og breytingar á skilmálum

Netkynning áskilur sér rétt til að uppfæra þessa skilmála. Breytingar taka gildi þegar þær eru birtar á þessari síðu.

Persónuverndarstefna

1. Hvaða gögnum söfnum við?

Þegar þú hefur samband við Netkynningu — t.d. í gegnum tengiliðaformið, í tölvupósti eða síma — söfnum við þeim upplýsingum sem þú gefur sjálf/ur upp, svo sem nafni, netfangi, símanúmeri, nafni fyrirtækis og efni fyrirspurnarinnar.

2. Til hvers eru gögnin notuð?

Gögnin eru eingöngu notuð til að svara fyrirspurn þinni, veita tilboð, sinna umsömdu verkefni og eiga í nauðsynlegum samskiptum því tengdu. Netkynning selur ekki eða miðlar persónuupplýsingum til þriðju aðila í markaðslegum tilgangi.

3. Varðveislutími

Upplýsingar eru varðveittar á meðan á viðskiptasambandi stendur og í allt að 12 mánuði eftir að því lýkur, nema lengri varðveisla sé lögbundin — til dæmis gögn sem tengjast reikningum og bókhaldi, sem eru varðveitt í 7 ár í samræmi við lög um bókhald. Að þeim tíma liðnum er gögnum eytt eða þau gerð ópersónugreinanleg.

4. Réttindi þín

Samkvæmt persónuverndarlögum átt þú rétt á að fá aðgang að þeim upplýsingum sem við höfum um þig, fá rangar upplýsingar leiðréttar, og í ákveðnum tilvikum fá upplýsingum eytt. Til að nýta þessi réttindi, hafðu samband á [email protected].

5. Vefkökur (cookies)

Þessi vefsíða notar ekki vefkökur eða þriðja aðila greiningartól (t.d. Google Analytics) að svo stöddu. Verði slík tól tekin í notkun síðar verður þessi stefna uppfærð til samræmis og notendur upplýstir.

6. Öryggi gagna

Netkynning leitast við að verja persónuupplýsingar með viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum í samræmi við eðli og umfang starfseminnar.

7. Hafa samband

Spurningum um persónuvernd má beina til Ólafs Kristjánssonar á [email protected] eða í síma 686 8686.

Fyrirtæki: Netkynning og kennsla ehf, kt. 660723-1020.