Þjónusta
Ráðgjöf og innleiðing á gervigreind
Aðstoð við að nýta gervigreind á öruggan og hagnýtan hátt í starfi — allt frá persónulegri einkaþjálfun til innleiðingar í heilt fyrirtæki.
Hvað felur þjónustan í sér?
- Greining á því hvar gervigreind getur sparað tíma eða bætt gæði í þínu starfi.
- Kennsla í að skrifa skýr og árangursrík fyrirmæli.
- Þjálfun í öruggri og ábyrgri notkun, þ.m.t. meðferð trúnaðargagna.
- Ráðgjöf um innleiðingu og reglur fyrir heilt fyrirtæki eða teymi.
Fyrir hverja hentar þetta?
Stjórnendur, sérfræðinga, sjálfstætt starfandi og teymi sem vilja nýta gervigreind markvisst í daglegu starfi — óháð fyrri reynslu.
Hvaða vandamál leysir þetta?
Flestir hafa prófað ChatGPT eða sambærileg verkfæri lauslega, en ná ekki að nýta þau markvisst í starfi. Þjálfunin brúar það bil með raunverulegum verkefnum.
Einkaþjálfun í gervigreind
Tveir einkatímar, sniðnir að þínu starfi, með raunverulegu verkefni á milli tíma.
kr. 87.400
Námskeið fyrir stjórnendur og starfsfólk
Hagnýtt námskeið sem breytir gervigreind úr leikfangi í öflugan samstarfsfélaga í starfi.
Fyrirtæki og teymi: Þjálfun og ráðgjöf fyrir fleiri en einn starfsmann, eða innleiðing gervigreindar í heilt fyrirtæki, er útfærð sérstaklega.
