top of page
Wix-bakgrunnur.jpg

Gervigreind sem skilar raunverulegum árangri í fyrirtækjum.

Ekki bara fyrirlestur. Verkefnadrifin þjálfun sem einfaldar og eykur afköst.

 

Gervigreind er ekki lengur spurning um hvort, heldur hvernig. Flest fyrirtæki eru komin af stað en fá ná raunverulegum ávinningi.

Ástæðan er einföld: fólk lærir ekki gervigreind með því að hlusta. Fólk lærir með því að nota.

1920-x-1080-hvernig-get-eg-adstodad.png
Óli-hringur.png

Ólafur Kristjánsson hefur starfað um árabil sem tölvukennari með megináherslu á gervigreind og hagnýta kennslu í gerð markvissra og skilvirkra skipana. 
Ólafur hefur jafnframt tekið virkan þátt í opinberri umræðu um tæknimál og verið reglulegur gestur í fjölmiðlum á borð við Bylgjuna og K100, auk fleiri fjölmiðla.

gpt.png
copilot.png
gemini.png
suno.png

Verkefnadrifin nálgun lykillinn að árangri

Námskeiðin mín eru hönnuð út frá einni meginreglu:

  • Þátttakendur vinna raunveruleg verkefni tengd eigin störfum.

  • Starfsfólk prófar gervigreind strax

  • Verkefnin tengjast daglegum áskorunum

  • Þekking breytist í færni

  • Ávinningurinn sést daginn eftir, ekki mánuðum síðar

Fyrir hverja eru námskeiðin?

Námskeiðin eru sérstaklega hönnuð fyrir:

  • Stjórnendur sem vilja nýta gervigreind í stefnumótun og ákvarðanatöku

  • Mannauðsstjóra sem vilja tryggja samræmda, örugga og árangursríka innleiðingu​

  • Markaðsteymi sem vilja hraða efnisframleiðslu og auka gæði

  • Skrifstofu- og fagteymi sem vilja spara tíma og vinna betur

gpt.png

Námskeiðspakkar í boði

Almenn-kynning-á-MML-tólum.png

1. Fyrsta snerting kr. 149.000

Almenn kynning á mállíkönum ChatGPT - Copilot - Gemini

 

Grunnskilningur sem eyðir óvissu og skapar sameiginlegt tungumál

  • Hvað málíkön eru og hvernig þau virka

  • Hagnýt dæmi úr rekstri fyrirtækja

  • Hvað gervigreind getur og getur ekki gert

  • Öryggi, trúnaður og ábyrg notkun

 

Tilvalið fyrsta skref fyrir teymi og stjórnendur

Skipanir-og-skipanaþjálfun.png

2. Skipanir kr. 199.000

Skipanir og skipanaþjálfun verkleg þjálfun

Lærðu að stjórna gervigreind, ekki bara spyrja
• Uppbygging árangursríkra skipana
• Hlutverk, markmið og tónn
• Endurbætur á niðurstöðum með markvissri aðferð

Þátttakendur vinna eigin verkefni og sjá muninn strax.
Að námskeiði loknu fá þátttakendur aðgang að öflugum íslenskum kennsluvef, þar sem kenndar eru yfir 300 tilbúnar skipanir sem styðja áframhaldandi notkun og dýpri færni í daglegu starfi.

Spjallbottar.png

3. Spjallþjónar kr. 199.000

Hér læra þátttakendur að búa til sérhæfða spjallþjóna (Agents) í ChatGPT sem vinna afmörkuð verkefni fyrir fyrirtækið. 

Kennslan er verkleg þar sem þátttakendur smíða eigin spjallþjóna sem endurspegla þarfir fyrirtækisins. 

Þátttakendur læra meðal annars að byggja:

  • Spjallþjónn sem aðstoðar við efnisgerð og hugmyndavinnu

  • Ritsnillingur sem heldur stíl og tón fyrirtækisins

  • Spjallþjónn sem þekkir innri reglur, ferla og upplýsingar

  • Innri þjónustubotta sem léttir á álagi hjá starfsfólki

 

Eftir námskeiðið eru spjallþjónar orðnir raunverulegir samstarfsmenn í daglegu starfi.

Myndagerð.png

4. Myndvinnsla kr. 199.000

Myndvinnsla, mynbandagerð og tónlist með gervigreind

Skapandi efnisframleiðsla á methraða fyrir fyrirtæki sem vilja meiri hraða, minni kostnað og fulla stjórn.

• Myndir fyrir markaðsefni og kynningar
• Myndbönd fyrir samfélagsmiðla og stafrænar auglýsingar
• Tónlist og hljóð fyrir myndbönd og efni

 

Notast er við nýjustu gervigreindartól á borð við Google NanoBanana, Google Veo 3 og Google AI Studio, með áherslu á hagnýta notkun í rekstri fyrirtækja.

 

• Þátttakendur fá fjölmargar tilbúnar og prófaðar skipanir fyrir mynd-, myndbanda- og hljóðvinnslu
• Skipanirnar eru afhentar til eignar og nýtast áfram í daglegu starfi

 

Minni útvistun – meiri stjórn og hraði

5. Heildstæður námskeiðspakki í gervigreind
öll námskeiðin saman
 kr. 726.000 (20% afsláttur 580.800)


Þessi pakki inniheldur öll fjögur gervigreindarnámskeiðin í einni heildstæðri þjálfunarleið og er hannaður fyrir fyrirtæki sem vilja fara alla leið frá fyrstu snertingu yfir í raunverulega innleiðingu gervigreindar í daglegu starfi.

Þjálfunin er hagnýt og verkefnadrifin þar sem þátttakendur vinna eigin verkefni á námskeiðunum og læra að beita gervigreind markvisst í rekstri, samskiptum og efnisframleiðslu. Pakkinn nær yfir almenna kynningu á mállíkönum, skipana- og skipanaþjálfun, smíði sérhæfðra spjallbotta og mynd-, myndbanda- og tónlistargerð með gervigreind.

Að námskeiði loknu fá þátttakendur aðgang að öflugum íslenskum kennsluvef með yfir 300 tilbúnum skipunum, sem styður áframhaldandi notkun og dýpri færni. Útkoman er samræmd innleiðing, aukin afköst og gervigreind sem verður varanlegur hluti af vinnuferlinu ekki aukaverkefni.

Hver er ávinningurinn

• Tímasparnaður í daglegum störfum – starfsmenn læra að nota gervigreind til að flýta endurteknum verkefnum, undirbúningi og úrvinnslu.

• Aukin framleiðni án aukins mannafla – meiri afköst fást úr sama teymi með markvissri notkun gervigreindar.

• Minni útvistun og lægri kostnaður – markaðsefni, greiningar og textavinna er unnin innanhúss með meiri stjórn.

• Samræmd og örugg innleiðing – dregur úr tilviljanakenndri notkun, áhættu og tvíverknaði innan fyrirtækisins.

• Betri ákvarðanataka og samkeppnisforskot – stjórnendur fá hraðari yfirsýn, skýrari gögn og betri stuðning við stefnumótun.

Viðskitapavinir

Rvk-logo.png
112-logo.png
OK-logo.png
Iðan-logo.png

Reykjavíkurborg Mannauðs- og starfsumhverfissvið

Neyðarlínan fræðsluefni
Iðan fræðslusetur fræðsluefni

Límtré vírnet fræðsluefni

Harpa útfarastofa streymi

Fitnesssport fræðsluefni

Landspítalinn fræðsluefni

HSveitur fræðsluefni

Símey fræðsluefni

LV-logo.png
Svar-logo.png
LS-logo.png

Svar fræðsluefni
Alfred jobs (Malta) fræðsluefni

Opin Kerfi kynningarefni og fræðsluefni

BFO fræðsluefni

Blikklausnir fræðsluefni

Kælitækni fræðsluefni

Lindin þvottastöð fræðsluefni

Garmin fræðsluefni

Leiðbeinandinn

Ólafur Kristjánsson hefur starfað um árabil sem tölvukennari með megináherslu á gervigreind og hagnýta kennslu í gerð markvissra og skilvirkra skipana. Í kennslu sinni leggur hann áherslu á að þátttakendur öðlist raunhæfan skilning á því hvernig gervigreind nýtist í daglegu starfi, óháð fyrri tæknikunnáttu.
Auk þess býr Ólafur yfir reynslu af stafrænu miðlunarefni, þar á meðal myndvinnslu og almennri klippivinnu, þar sem gervigreind gegnir einnig hlutverki við að einfalda, hraða og bæta verkferla í hagnýtri myndvinnslu.
Ólafur hefur jafnframt tekið virkan þátt í opinberri umræðu um tæknimál og verið reglulegur gestur í fjölmiðlum á borð við Bylgjuna og K100, auk fleiri fjölmiðla.

Squere-2.jpg

...og þetta eru ummæli þeirra

Hlynur-Agnarsson1.jpg

Við hjá Reykjavík Marketing höfum unnið mikið með Netkynningu undanfarin ár með góðum árangri. Ólafur er áreiðanlegur og skilar alltaf góðri vinnu á tilsettum tíma og er úrræðagóður með meiru. 

Hlynur Þór Agnarsson

Reykjavík marketing ehf.

Páll-Árnason.jpg

Ég fékk Ólaf til að kenna í gegnum Teams fyrir Alfred Jobs á Möltu. Verkefnið var krefjandi og tímaramminn þröngur, en þrátt fyrir það náðum við ótrúlegum árangri á stuttum tíma. Kennslan var skýr, hagnýt og skilaði raunverulegum niðurstöðum.

Páll Árnason

Alfred Jobs Malta.

Kristján-Már-Gunnarsson.jpg

Það er augljóst að Ólafur hefur mikla ástríðu fyrir gervigreind og kennslu. Skrifstofuteymið okkar var mjög ánægt og fann strax að kennslan hjálpaði okkur að komast vel af stað. Allt var útskýrt á mannamáli.

Kristján Már Gunnarsson

Límtré Vírnet ehf.

Fjalar.jpg

Við fengum Ólaf til að gera fræðsluefni fyrir okkur og vorum afar ánægð með samstarfið. Verkefnið heppnaðist vel og efnið hefur fengið mjög góðar viðtökur.

Sigurður Fjalar Jónsson

Iðan fræðslusetur.

Hefja innleiðingu

Tími
Time
HoursMinutes
Pantaðu þjálfun og innleiðingu
Bókaðu námskeið

... eða hafðu samband

Hafðu samband til að ræða hvernig ég get aðstoðað þitt fyrirtæki, símanúmerið er 6868686

NETKYNNING ehf. - Netkynning og kynning ehf - kt: 660723-1020

Netkynning og kennsla ehf - Kirkjusandur, Hallgerðargata 13 - olafur@netkynning.is - Sími: 6868686 

bottom of page