
Innleiddu gervigreind sem skilar raunverulegum árangri í fyrirtækinu.
Markviss þjálfun og fagleg innleiðing sem skilar árangri.
Flest fyrirtæki eru þegar farin að nota gervigreind.
En notkun er ekki það sama og innleiðing.
Gervigreind þarf að vera hluti af vinnuferlum, ákvarðanatöku og daglegri framkvæmd ekki aukaverkefni sem hver og einn prófar eftir hentugleika.
Ég aðstoða fyrirtæki sem eru komin af stað að taka næsta skref:
Úr tilraunum yfir í skipulagða, samræmda og árangursríka notkun.


Ólafur Kristjánsson hefur starfað um árabil sem tölvukennari með megináherslu á gervigreind og hagnýta kennslu í gerð markvissra og skilvirkra skipana.
Ólafur hefur jafnframt tekið virkan þátt í opinberri umræðu um tæknimál og verið reglulegur gestur í fjölmiðlum á borð við Bylgjuna og K100, auk fleiri fjölmiðla.
Verkefnadrifin nálgun lykillinn að árangri
Innleiðingin er hönnuð út frá einni meginreglu:
-
Þátttakendur vinna raunveruleg verkefni tengd eigin störfum.
-
Starfsfólk prófar gervigreind strax
-
Verkefnin tengjast daglegum áskorunum
-
Þekking breytist í færni
-
Ávinningurinn sést strax, ekki mánuðum síðar
Fyrir hverja hentar þjálfunin?
Hverjir fá mest út úr innleiðingu gervigreindar?
-
Stjórnendur sem vilja nýta gervigreind í stefnumótun og ákvarðanatöku
-
Mannauðsstjóra sem vilja tryggja samræmda, örugga og árangursríka innleiðingu
-
Markaðsteymi sem vilja hraða efnisframleiðslu og auka gæði
-
Skrifstofu- og fagteymi sem vilja spara tíma og vinna betur
Það sem er í boði

1. Fyrsta snerting kr. 149.000
Stefnumiðuð undirstaða fyrir markvissa notkun gervigreindar ChatGPT - Copilot - Gemini
Þessi þjálfun leggur faglegan grunn að samræmdri notkun gervigreindar innan fyrirtækisins. Markmiðið er að eyða óvissu, samræma skilning og skapa sameiginlegt tungumál áður en lengra er haldið í innleiðingu.
Fyrirtæki sem sleppa þessu skrefi lenda oft í ósamræmi, rangri notkun eða ónýttum tækifærum.
Ég mun fara yfir:
-
Hvað mállíkön eru í raun og veru – og hvernig þau virka í rekstrarumhverfi
-
Hvar raunveruleg tækifæri liggja í daglegum verkefnum
-
Skýr dæmi úr íslensku og alþjóðlegu fyrirtækjaumhverfi
-
Hvernig gervigreind styður við ákvarðanatöku, greiningu og efnisvinnslu
-
Hvar mörkin liggja – hvað tæknin getur og getur ekki gert
-
Öryggi, trúnað, persónuvernd og ábyrgð stjórnenda
Af hverju skiptir þetta máli?
Án sameiginlegs skilnings verður notkun gervigreindar tilviljanakennd.
Með skýrum grunni verður hún markviss, örugg og undirbúin fyrir næsta skref í innleiðingu.
Lengd 6 klst.

2. Skipanir kr. 199.000
Verkleg þjálfun í að ná stjórn á gervigreind
Munurinn á meðalmennsku og framúrskarandi árangri í gervigreind liggur í skipunum.
Í þessari þjálfun lærir starfsfólk að vinna markvisst með gervigreind sem faglegt verkfæri þannig að niðurstöður verði fyrirsjáanlegar, nothæfar og í takt við markmið fyrirtækisins.
Ég þjálfa ykkur í að:
-
Byggja upp árangursríkar skipanir sem skila stöðugum og mælanlegum niðurstöðum.
-
Skilgreina hlutverk, markmið og tón svo gervigreind vinni í anda fyrirtækisins.
-
Bæta niðurstöður kerfisbundið í stað þess að prófa sig áfram af handahófi.
-
Stytta vinnuferli, auka gæði og draga úr endurvinnu.
Verkefnadrifin framkvæmd
Ég vinn með ykkar eigin verkefni úr daglegum rekstri hvort sem það er stefnumótun, markaðsefni, greining, skýrslugerð eða innri samskipti.
Munurinn sést strax:
-
Skýrari niðurstöður
-
Minni tími í endurvinnslu
-
Meiri nákvæmni
-
Betri samræmi innan fyrirtækisins
Að lokinni þjálfun
Þið fáið aðgang að íslenskum þekkingarvef með yfir 300 tilbúnum og prófuðum skipunum sem styðja áframhaldandi notkun og dýpri færni í daglegu starfi.
Markmiðið mitt er að gervigreind verði hluti af vinnulaginu ykkar – ekki tímabundið verkefni.
Lengd 8 klst.

3. Spjallþjónar kr. 199.000
Sérhæfðir stafrænir aðstoðarmenn fyrir fyrirtækið þitt
Ég þjálfa teymið í að hanna og innleiða sérhæfða spjallþjóna (Agents) í ChatGPT sem sinna afmörkuðum og skilgreindum verkefnum innan fyrirtækisins.
Markmiðið er ekki að prófa tæknina heldur að byggja upp raunverulega stafræna samstarfsmenn sem vinna í takt við markmið, tón og verklag fyrirtækisins.
Verkefnadrifin uppbygging
Ég vinn með ykkar raunverulegu ferla og þarfir og leiði ykkur í gegnum uppbyggingu spjallþjóna sem endurspegla starfsemi fyrirtækisins.
Þið farið ekki heim með hugmynd.
Þið farið heim með virkan spjallþjón.
Dæmi um innleiðingu:
-
Spjallþjónn sem styður við efnisgerð og hugmyndavinnu.
-
Ritsnillingur sem heldur stíl og tón fyrirtækisins stöðugum.
-
Innri þekkingarþjónn sem þekkir reglur, ferla og lykilupplýsingar.
-
Innri þjónustubotti sem léttir álagi af starfsfólki og svarar endurteknum fyrirspurnum.
-
Copilot Studio NÝTT
-
Notkun á OpenClaw NÝTT
Ávinningurinn
-
Samræmdari samskipti
-
Minni tími í endurtekna vinnu
-
Betri nýting á innri þekkingu
-
Skýr ábyrgð og afmörkuð hlutverk
Að lokinni þjálfun eru spjallþjónar orðnir virkir hluti af daglegu vinnuflæði – ekki tilraunaverkefni heldur raunverulegir stafrænir samstarfsmenn.
Lengd 8 klst.

4. Myndvinnsla kr. 199.000
Myndir, myndbönd og hljóð framleitt innanhúss með gervigreind
Ég þjálfa teymið þitt í að nýta gervigreind til að framleiða myndefni, myndbönd og hljóð hratt, hagkvæmt og með fullri stjórn.
Markmiðið er ekki bara að búa til efni – heldur að færa framleiðsluna nær fyrirtækinu, stytta ferla og draga úr útvistun.
Ég vinn með ykkur að því að:
-
Framleiða myndir fyrir markaðsefni, kynningar og stafræna miðla
-
Búa til myndbönd fyrir samfélagsmiðla, herferðir og innri samskipti
-
Hanna tónlist og hljóð sem styrkir ímynd og skilaboð
Við notum nýjustu verkfæri á borð við Google NanoBanana, Google Veo 3 og Google AI Studio – með áherslu á hagnýta og rekstrartengda notkun, ekki tæknisýningar.
Verkefnadrifin þjálfun
Ég vinn með raunveruleg verkefni úr ykkar starfsemi.
Þið prófið, betrumbætið og mótið efnið í rauntíma með skýra tengingu við markmið fyrirtækisins.
Þið fáið jafnframt fjölmargar tilbúnar og prófaðar skipanir fyrir mynd-, myndbands- og hljóðvinnslu sem þið eignist og getið nýtt áfram í daglegu starfi.
Ávinningurinn
-
Minni útvistun
-
Meiri hraði í framleiðslu
-
Betri stjórn á ímynd og gæðum
-
Lægri kostnaður til lengri tíma
Gervigreind verður hluti af skapandi vinnuferlinu ykkar ekki tilraun, heldur samkeppnisforskot.
Lengd 8 klst.
5. Heildstæð innleiðingarleið í gervigreind
Öll fjögur þjálfunarsviðin saman Tilboð kr 580.000. Fullt verð kr. 726.000
Þessi leið sameinar öll fjögur þjálfunarsviðin í eina heildstæða innleiðingu og er hönnuð fyrir fyrirtæki sem vilja fara alla leið frá fyrstu skrefum yfir í markvissa og faglega notkun gervigreindar í daglegu starfi.
Þjálfunin er hagnýt og verkefnadrifin þar sem þátttakendur vinna með eigin verkefni og samþætta gervigreind inn í rekstur, samskipti og efnisframleiðslu. Leiðin nær yfir grunn aðferðarfræði mállíkana, markvissa skipanaþjálfun, uppbyggingu sérhæfðra spjallbotta og framleiðslu á myndefni, myndböndum og hljóði með gervigreind.
Að lokinni þjálfun fá þátttakendur aðgang að öflugum íslenskum vef með yfir 300 tilbúnum skipunum sem styðja áframhaldandi notkun og dýpri færni. Útkoman er samræmd innleiðing, aukin afköst og gervigreind sem verður hluti af vinnuferlum ekki hliðarverkefni.
Lengd 30 klst.
Hver er ávinningurinn
• Tímasparnaður í daglegum störfum – starfsmenn læra að nota gervigreind til að flýta endurteknum verkefnum, undirbúningi og úrvinnslu.
• Aukin framleiðni án aukins mannafla – meiri afköst fást úr sama teymi með markvissri notkun gervigreindar.
• Minni útvistun og lægri kostnaður – markaðsefni, greiningar og textavinna er unnin innanhúss með meiri stjórn.
• Samræmd og örugg innleiðing – dregur úr tilviljanakenndri notkun, áhættu og tvíverknaði innan fyrirtækisins.
• Betri ákvarðanataka og samkeppnisforskot – stjórnendur fá hraðari yfirsýn, skýrari gögn og betri stuðning við stefnumótun.
Viðskiptavinir




Reykjavíkurborg Mannauðs- og starfsumhverfissvið
Neyðarlínan fræðsluefni
Iðan fræðslusetur fræðsluefni
Límtré vírnet fræðsluefni
Harpa útfarastofa streymi
Fitnesssport fræðsluefni
Landspítalinn fræðsluefni
HSveitur fræðsluefni
Símey fræðsluefni



Svar fræðsluefni
Alfred jobs (Malta) fræðsluefni
Opin Kerfi kynningarefni og fræðsluefni
BFO fræðsluefni
Blikklausnir fræðsluefni
Kælitækni fræðsluefni
Lindin þvottastöð fræðsluefni
Garmin fræðsluefni
Leiðbeinandinn
Ólafur Kristjánsson hefur starfað um árabil sem tölvukennari með megináherslu á gervigreind og hagnýta kennslu í gerð markvissra og skilvirkra skipana. Í kennslu sinni leggur hann áherslu á að þátttakendur öðlist raunhæfan skilning á því hvernig gervigreind nýtist í daglegu starfi, óháð fyrri tæknikunnáttu.
Auk þess býr Ólafur yfir reynslu af stafrænu miðlunarefni, þar á meðal myndvinnslu og almennri klippivinnu, þar sem gervigreind gegnir einnig hlutverki við að einfalda, hraða og bæta verkferla í hagnýtri myndvinnslu.
Ólafur hefur jafnframt tekið virkan þátt í opinberri umræðu um tæknimál og verið reglulegur gestur í fjölmiðlum á borð við Bylgjuna og K100, auk fleiri fjölmiðla.

...og þetta eru ummæli viðskiptavina

Við hjá Reykjavík Marketing höfum unnið mikið með Netkynningu undanfarin ár með góðum árangri. Ólafur er áreiðanlegur og skilar alltaf góðri vinnu á tilsettum tíma og er úrræðagóður með meiru.
Hlynur Þór Agnarsson
Reykjavík marketing ehf.

Ég fékk Ólaf til að kenna í gegnum Teams fyrir Alfred Jobs á Möltu. Verkefnið var krefjandi og tímaramminn þröngur, en þrátt fyrir það náðum við ótrúlegum árangri á stuttum tíma. Kennslan var skýr, hagnýt og skilaði raunverulegum niðurstöðum.
Páll Árnason
Alfred Jobs Malta.

Það er augljóst að Ólafur hefur mikla ástríðu fyrir gervigreind og kennslu. Skrifstofuteymið okkar var mjög ánægt og fann strax að kennslan hjálpaði okkur að komast vel af stað. Allt var útskýrt á mannamáli.
Kristján Már Gunnarsson
Límtré Vírnet ehf.

Við fengum Ólaf til að gera fræðsluefni fyrir okkur og vorum afar ánægð með samstarfið. Verkefnið heppnaðist vel og efnið hefur fengið mjög góðar viðtökur.
Sigurður Fjalar Jónsson
Iðan fræðslusetur.
... eða hafðu samband
Hafðu samband til að ræða hvernig hægt er að aðstoða þitt fyrirtæki, símanúmerið er 6868686





