top of page
Upp
Þjónusta

Beint streymi

Hér er í boði mjög sérhæfð þjónusta í beinu streymi. Allur búnaður uppfyllir strangar gæðakröfur. Streymisþjónusta er tilvalin fyrir ýmsa viðburði.
​Ég kappkosta að gæðin verði góð og verðlagningin er sanngjörn.

Gerð kennsluefnis

Framleiðsla kennsluefnis í stafrænu margmiðlunarformi hefur aukist gífurlega síðustu ár. Ýmis fyrirtæki og stofnarnir hafa t.a.m. látið gera kennsluefni fyrir t.d. Office 365 o.fl. 

Námskeið Ai

Þetta námskeið er ætlað þeim sem hafa áhuga á að læra grunnatriði gervigreindar. Markmið námskeiðsins er að undirbúa þátttakendur fyrir frekari notkun á gervigreindar fræðum og tengdum sviðum.

Kennslufyrirlestrar

Flest ef ekki öll fyrirtæki nota Microsoft Office vinnuumhverfið sem er í mikilli þróun og tekur breytingum reglulega. Til þess að mæta notendum þá bíð ég upp á klukkutíma mismunandi kennslufyrirlestra sem fer þannig fram að ég mæti á staðinn og skerpi á þekkingu starfsmanna sem eru að nota Microsoft Office. Nokkur sérsniðin námskeið eru í boði eins og t.d. Outlook, OneDrive, Teams o.fl. Kennslufyrirlesturinn er tekinn upp þannig að starfsmenn geta rifjað upp seinna.

Ólafur-að-kenna.png
Kennslufyrilestrar
Ólafur Kristjánsson

Ólafur Kristjánsson

Ég hef lengst af starfað sem tölvukennari og þáttastjórnandi og verið sýnilegur í fjölmiðlum þar sem fjallað er um tölvur og tæknimál. Ég hef verið tíður gestur á Bylgjunni og K100 þegar kemur að umfjöllun um ýmis tæknimál. Auk þess stjórnaði ég þáttunum „Tölvur og tækni“ á ÍNN og Hringbraut. 
Áhugi minn liggur í öllu því sem við kemur ljósmyndun, upptökum á stiklum, Photoshop og allri almennri klippivinnslu. Mín sérhæfing liggur í forritum frá Adobe og notkun þeirra. 
Auk þess að vera montinn, hnyttinn og sjálfhverfur, þá tel ég mig búa yfir stórskrýtinni snilligáfu sem lýtur að því að hjálpa fólki sem kann „minna en ekki neitt“ á tölvur og ýmis önnur tæki. 

Óli-2.png
bottom of page